Veikindin á útleið og foreldrarnir á innleið

Þá eru pabbi og mamma í Flórída og koma til mín með Greyhound bus á morgun. Þau flugu til Orlando á mánudaginn og ætla að vera þar í þrjár nætur. Það er nóg að skoða og skemmta sér við þar en verður líka gaman að fá þau hingað.

Annars eru strákarnir báðir búnir að vera lasnir núna, voru með streptókokka. Ásþór fór í dag í skólann en Þórarinn fer á morgun í fyrsta skipti síðan fyrir helgi. Reyndar var frí í öllum skólum á svæðinu og bara stóru svæði á mánudaginn vegna þess að það var snjór. Fyrir okkur íslendingana var þetta nú ekki mikill snjór en hann lá í þrjá daga sem er nú mjög mikið á þessum stað. Georgíubúar kunna auðvitað heldur ekkert að haga sér í hálku eða snjó. Malbikið er miklu sléttara en heima (og auðvitað engin nagladekk).

Svo er ég að verða búin að þýða nýja spilið okkar yfir á íslensku. Við skrifuðum það á ensku þar sem við erum að vonast til að geta fundið útgefanda hér. Nú erum við komin með samning við fyrirtæki á Íslandi sem ætlar að sjá um myndir og uppsetningu. Það er frábært. Rekur líka á eftir okkur að klára alveg.

Jæja, best að fara að hita mat handa liðinu, (þau þurfa auðvitað að BORÐA).

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björg Árnadóttir

Gott að strákarnir eru að hressast. Var einmitt að leita mér að upplýsingum um hvort þau væru komin til ykkar. Vonum að allt gangi vel hjá þeim.

Björg Árnadóttir, 5.3.2009 kl. 12:47

2 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Flott að heyra að strákarnir séu að hressast og gaman að heyra að það gangi vel með spilið.

Bergdís Rósantsdóttir, 11.3.2009 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rúnar og María
Rúnar og María
Þetta blogg er á vegum Maríu Huldar og Rúnars Þórs sem eru stödd í Atlanta í Bandaríkjunum á vegum CCP.

Nýjustu myndir

  • risahamborgari
  • medalíudrengir
  • verðlaunapeningar
  • Þórarinn og Ásþór úti á leikvelli
  • Strákarnir í niðurpökkun

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 395

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband